Sjálfbærni

Hugsjón Courtyard by Marriott Reykjavík Keflavík Airport Hotel er að hafa jákvæð áhrif á samfélag okkar með því að sýna fordæmi um sjálfbæran hótel- og veitingarekstur

Samstarf við Bláa Herinn & Garðasel

Við hjá Courtyard by Marriott og The Bridge erum í virku samstarfi við bæði Bláa Herinn og leikskólann Garðasel.


Blái herinn sér um að hreinsa upp umhverfið í kringum hótelið með góðum árangri. Þann 5. október fóru elstu börn leikskólans í gróðursetningarferð að Courtyard Marriott og gróðursettu ásamt starfsfólki hótelsins 40 sitkagreni plöntur. Eitt af markmiðum Íslands í bindingu CO2 er að endurheimta birkiskóga landsins.

Sjálfbærir valkostir hjá The Bridge Restaurant & Bar

Veitingarstaðurinn býður uppá mismunandi lífræn vín og The Bridge bjórinn okkar kemur frá Litla Brugghúsinu sem er staðsett í Suðurnesjabæ. Eigendur Brugghúsins eru þrír og koma þeir allir af Suðurnesjum og sérhæfa þeir sig í vönduðum handverksbjór.


Litla Brugghúsið er aðeins 11 mín. akstursfjarlægð frá Courtyard by Marriott Reykjavík Keflavík Airport.


Veitingarstaðurinn er í góðu samstarfi við íslenska framleiðendur og býður meðal annars uppá íslenskt sjávarfang ásamt öðrum íslenskum afurðum.

Share by: